

Við göngum mót hækkandi
sól, sól, sól
og sjáum hana þýða allt er
kól, kól, kól.
Svo vætlurnar streyma
og vetrinum gleyma
því vorið er komið með
sól, sól, sól.
Í mars mánuði eru foreldraviðtöl. Að þessu sinni eru foreldrar barna sem byrjuðu eftir sumarfrí boðaðir. Þetta á ekki við foreldra barna á Lynginu og Laufinu, þar eru allir foreldrar boðaðir í viðtal.
Foreldrar 109 barna eða 77% foreldra svöruðu könnuninni. 18 foreldrar eða 16% völdu fyrst lokun 2. júlí – 27. júlí. 61 foreldri eða 55% völdu aðra lokun 9. júlí – 3. ágúst. 30 foreldrar eða 27% völdu þriðju lokun 16. júlí – 10. ágúst. Samkvæmt þessu verður Smárahvammur - Kjarrið lokað frá kl. 13.00 föstudaginn 6. júlí til kl. 13.00 þriðjudaginn 7. ágúst.
Ferðin okkar í Guðmundarlund tókst í alla staði vel. Veðrið var kalt og stillt og nutu börn og kennarar útiverunar á þessum fallega stað.
Engin grein fannst.